Fimmtudagur - 18.3 2010 - 14:23 - Ummæli ()

Flest bendir til að Magma Energy fái leyfi til kaupa á HS Orku. Hættulegt fordæmi?

svartsengi_plant_iceland.jpgHeimildir vefritsins Smugunnar benda til þess að nefnd um erlendar fjárfestingar sem nú fundar vegna tilboðs kanadíska fyrirtækisins Magma Energy í HS Orku muni gefa grænt ljós á gjörninginn sem er æði umdeildur. Fullyrt er að Samfylking, Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur myndi meirihluta í málinu.

Enginn skortur er á gagnrýnum röddum vegna þessa máls en fyrir liggur að Magma Energy er að fara nokkuð á svig við reglur en fyrirtækið, sem er kanadískt, stofnaði sérstakt skúffufyrirtæki í Svíþjóð til að gera tilboðið í orkufyrirtækið íslenska. Kemur það til af þeim reglum að eingöngu fyrirtækjum á EES svæðinu sé heimilt að kaupa í orkufyrirtækjum hér á landi.

Er um mikið fordæmismál að ræða enda er ljóst að gangi gjörningurinn í gegn gætu Íslendingar raunverulega átt á hættu að missa auðlindir sínar í hendur erlendum fyrirtækjum. Þá sannast og líka að einu gildir hvort fyrirtækið sem um ræðir er sannarlega evrópskt fyrirtæki eða hvort það nægi yfirleitt að stofna skúffufyrirtæki innan EES til að fá aðgang að íslenskri orku.

Komið hefur fram að kaupverð HS Orku er greitt með kúluláni frá Orkuveitu Reykjavíkur og aflandskrónum.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar