Fimmtudagur - 18.3 2010 - 07:42 - Ummæli ()

Jón Ásgeir undirbýr nýtt Bónusævintýri í London. Þrjár verslanir í undirbúningi

jon-asgeir-london.jpgJón Ásgeir Jóhannesson, fyrrverandi stjórnarformaður Baugs Group, undirbýr nú opnun þriggja lágvöruverðsverslana í Lundúnum. Heitið á verkefninu er Best Price og allar líkur á að búðirnar muni bera sama nafn þótt það sé ekki endanlega frágengið, samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins.

Samkvæmt fréttinni er hugmyndin að byggja verslanirnar upp á svipaðan hátt og Bónus byrjaði á Íslandi 1989. Verið er að leita að staðsetningu fyrir verslanirnar. Það mun vera komið nokkuð langt á veg þótt leigusamningar hafi ekki enn verið undirritaðir. Gríðarleg samkeppni er í rekstri lágvöruverðsverslana í Lundúnum og skiptir staðsetning miklu máli. Á sama tíma má húsnæðið ekki vera of dýrt svo að hægt sé að halda verði niðri.

Í byrjun er lagt upp með að selja þurrvörur sem einfaldar birgðahald og heldur niðri kostnaði. Enda er algengt í London að versla þurrvörur í lágvöruverðsverslunum og Lundunarbúar vanir því.

Verkefnið gengur undir nafninu Best Price Foods Limited en það var upphaflega stofnað í júní 2009. Í bresku fyrirtækjaskránni er Hörður Logi Hafsteinsson skráður framkvæmdastjóri félagsins. Hann var áður starfsmaður Baugs Group og hefur starfað með Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og Gunnari Sigurðssyni, fyrrverandi forstjóra Baugs, að ýmsum verkefnum í London.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar