Formaður þingnefndarinnar sem fjalla mun um skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis þegar hún kemur út segir fráleitt að nefndarmenn hafi lekið skýrslunni. Sigurður G. Guðjónsson, lögmaður, fullyrðir að hafa þegar séð skýrsluna að hluta og í henni sé fátt merkilegt að hans mati.
Fjallað er um það á Pressunni að Jón Magnússon, hæstaréttarlögmaður og fyrrum þingmaður, krefjist tafarlausrar rannsóknar á lekanum og vill útskýringar nefndarmanna í alþingisnefndinni hvernig lekinn hafi átt sér stað.
Formaður nefndarinnar, Atli Gíslason, segir slæmt ef upplýsingar hafi þegar lekið út en segir af og frá að þann leka megi rekja til einhverra þeirra níu þingmanna sem sitja í þingnefndinni um málið. Sé það beinlínis útilokað enda hafi nefndin ekki fengið skýrsluna í hendur frekar en aðrir landsmenn. Þá telur Atli ólíklegt að starfsmenn Rannsóknarnefndarinnar hafi lekið gögnum heldur enda vandað fólk við störf þar.
Telur Atli líklegra að þau gögn sem Sigurður G. Guðjónsson sé að vísa til sé sá hluti skýrslunnar sem sendur hafi verið þeim er andmælarétt höfðu en viðkomandi fengu sendar allar upplýsingar þeim sjálfum tengdum úr skýrslunni til andmæla. Þar gæti Sigurður helst hafa séð umræddan hluta hennar.
