Fimmtudagur - 18.3 2010 - 14:02 - Ummæli ()

Eiginmaður Kate Winslet neitar framhjáhaldi

sam-mendes-and-kate-winslet-revolutionary-4lzrpw.jpgSíðasta mánudag tilkynntu þau Kate Winslet og Sam Mendes að þau ætluðu að skilja við hvort annað og nú leiðir fólk líkur að því að hann hafi haldið framhjá henni.

Þessu neitar Sam alfarið og upplýsingafulltrúi hans er æfareiður yfir ásökununum.

Sam mun hafa átt í sambandi við bresku leikkonuna Rebeccu Hall en upplýsingafulltrúinn segir þetta „fáránlegt“, „algert kjaftæði“ og „ósannindi“.

Þó er ljóst að mikill vinskapur varð á milli þessara tveggja meðan á þau voru við tökur en upplýsingafulltrúinn æfareiði segir þau aðeins vera faglega samstarfsaðila.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar