Ný stjórn Arion banka var kosin á hluthafafundi bankans í dag og á stjórnarfundi í kjölfarið var Monica Caneman kjörin stjórnarformaður en hún er fyrrverandi aðstoðarforstjóri Skandinaviska Enskilda bankans.
Aðrir stjórnarmenn eru Guðrún Johnsen, varaformaður, Kristján Jóhannsson, Steen Hemmingsen og Theodór S. Sigurbergsson. Varamenn stjórnar eru: Agnar Kofoed-Hansen, Jóhannes R. Jóhannesson, Ólafur Helgi Ólafsson, María Grétarsdóttir og Guðrún Björnsdóttir.
Var við valið áhersla lögð á fjölþætta menntun og reynslu á sviði banka- og fyrirtækjarekstrar. Sérstaklega var litið til þess hversu krefjandi aðstæður eru í íslensku efnahagslífi og þeirrar uppbyggingar sem framundan er.
Jafnframt þótti mikilvægt að innan stjórnar væru erlendir aðilar með umfangsmikla fagþekkingu. Tveir stjórnarmanna eru erlendir með fjölþætta reynslu af alþjóðlegri fjármálastarfsemi. Stjórnarformaðurinn, Monica Caneman, er fyrrverandi aðstoðarforstjóri Skandinaviska Enskilda Banken en þar starfaði hún um 25 ára skeið. Frá árinu 2001 hefur hún helgað sig setu í stjórnum fyrirtækja.
Hin nýja stjórn er sú fyrsta sem skipuð er eftir að skilanefnd Kaupþings fyrir hönd kröfuhafa og íslenska ríkið gengu frá samkomulagi um eignarhald Arion banka. Samkvæmt því fara Kaupskil ehf., eignarhaldsfélag Kaupþings, með 87% eignarhlut Kaupþings í Arion banka og skipa fjóra stjórnarmenn, en Bankasýsla ríkisins fer með 13% hlut ríkisins og skipar fimmta stjórnarmanninn.
