Fimmtudagur - 18.3 2010 - 10:07 - Ummæli ()

Reynt að lama fjarskipti á höfuð- borgarsvæðinu. Bensínsprengjur við fjarskiptamöstur

logregla1.jpgGerð var tilraun til að lama veigamikinn hluta af fjarskiptaneti höfuðborgarsvæðisins í nótt. Talið er að þremur bensínsprengjum hafi verið komið fyrir við fjarskiptamöstur í Öskjuhlíð og tvær þeirra sprungið. Ein fannst ósprungin. Atlagan er talin alvarleg.

Frá þessu er greint á fréttavef Morgunblaðsins.

Fram kemur að lögreglu var tilkynnt um eldinn kl. 4.42 í nótt. Vaktmenn í nálægu húsi muni hafa ráðist að eldinum með slökkvitækjum og ráðið niðurlögum hans.

Varðstjóra lögreglu höfuðborgarsvæðisins segir í samtali við fréttavef Morgunblaðsins að eldur hafi logað í köplum í tveimur möstrum á staðnum. Annað mastrið er í eigu Fjarska og hitt í eigu Mílu. Greiðlega hafi gengið að slökkva eldinn. Töluvert tjón hlaust af eldinum. Meðal annars hafi slegið út sambandi Stöðvar 2 og Og fjarskipta en fyrirtækin eru með endurvarpa á möstrunum.

Ekki er vitað um eldsupptök og málið í rannsókn. Hann hafði ekki upplýsingar um að reynt hafi verið að kveikja í möstrunum.

Í fréttinni segir að möstrin þrjú beri m.a. loftnet Símans, Vodafone, Tetra, Landsvirkjunar, Fjarska og Mílu. Ef tekist hefði að skemma búnaðinn hefðu bæði GSM fjarskipti og önnur fjarskipti svo sem örbylgjusambönd orðið fyrir mikilli truflun.

Blaðamaður mbl.is sem var á staðnum í morgun segir að ósprungna sprengjan hafi innihaldið mikið bensín á stórum plastflöskum sem límdar voru saman og kveikibúnaður í miðjunni


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar