Fimmtudagur - 18.3 2010 - 14:16 - Ummæli ()

Sandra Bullock er flutt út frá eiginmanninum

Eyjan greindi frá því í gær að eiginmaður Söndru Bullock hefði átt í framhjáhalds sambandi við aðra konu í ellefu mánuði.

sandra_jesse.jpgSandra á ennfremur að hafa flutt út frá honum aðeins örfáum dögum áður en viðhaldið, Michelle ‘Bombshell’ McGee, greindi frá sambandinu í bandarísku slúðurblaði.

Sambandið stóð á meðan Sandra var við tökur á The Blind Side en hún hlaut óskarinn fyrir hlutverk sitt í þeirri mynd.

Sandra Bullock hefur tekið slúðurfréttunum illa og meðal annars hefur hún afboðað sig á frumsýningu á myndinni í London í næstu viku.

Upplýsingafulltrúi hennar kvað ástæðuna persónulega og ófyrirsjáanlega.

Sandra Bullock og Jesse James giftu sig árið 2005 en þá höfðu þau verið saman í eitt ár.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar