Forsvarsmenn sjónvarpsstöðvarinnar Skjás Eins hafa ákveðið að hætta með fréttaútsendingar sínar sem hafa verið sendar út alla virka daga síðan í vetur. Munu fréttirnar verða lagðar af eftir páskana og áherslan lögð á annað afþreyingarefni. Óvíst er hvort fréttatímar verða sendir út aftur.
Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri, segir bjartsýni hafa ríkt þegar fyrst var ákveðið að bjóða upp á fréttir á stöðinni en áhorf hafi minnkað það mikið að ekki verði við búið.
„Við ákváðum að bjóða upp á sjónvarpsfréttir vegna þess að við vildum styðja faglega miðlun frétta í íslenskri fjölmiðlun. Með samstarfinu við Morgunblaðið fengum við tækifæri til að láta á það reyna þar sem fréttastofa Morgunblaðsins tók að sér vinnslu fréttanna. Áhorf á fréttirnar var mjög gott fyrst um sinn en frá því að SkjárEinn breyttist í áskriftarstöð hefur það valdið okkur vonbrigðum og við erum fyrst og fremst að bregðast við því.“
