Tveir stjórnarþingmenn, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, Samfylkingunni, og Árni Þór Sigurðsson, VG, hafa látið í ljós óánægju með ákvörðun bankaráðs Íslandsbanka að endurráða Birnu Einarsdóttur í starf bankastjóra án auglýsingar. Ríkisstjórnin hafði áður markað þá stefnu að bankastjórastöður nýju bankanna yrðu auglýstar.
,,Stjórnendur Íslandsbanka ráða þessu, en bankinn lenti í fanginu á ríkinu og það er búið að kosta almenning gríðarlega fjármuni,“ er haft eftir Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur vegna ráðningar Birnu. ,,Þetta bendir til dómgreindarskorts hjá stjórn bankans. Hún skilur ekki andrúmsloftið sem bankinn starfar í,“ segir þingmaðurinn ennfremur.
,,Bankarnir verða að gæta að því að ríki sátt um framgöngu þeirra,“ hefur Smugan eftir Árna Þór Sigurðssyni. ,,Fólk mun eiga erfitt með að sætta sig við að þeir falli strax aftur í sama farið.“
Árni Þór segir að ráðningin hafi komið á óvart. Ríkið eigi enn hlut í bankanum og það hafi verið mótuð skýr stefna um að auglýsa ætti stöðuna. Hann sagðist ekki vita annað en að staðan í Landsbankanum yrði auglýst.
,,Það er líka óheppilegt að Martha Eiríksdóttir fulltrúi ríkisstjórnarinnar skuli greiða atkvæði gegn eigendastefnu ríkisstjórnarinnar. Hún verður að útskýra sína afstöðu,“ segir Sigríður Ingibjörg við Smuguna. ,,Fjármálafyrirtækin verða að sýna samfélagslega ábyrgð, Það er áhyggjuefni að almenningi skuli sýnt virðingarleysi.“
