Björgvin G. Sigurðsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, segir að ríkisstjórnin hafi samþykkt að hollenska fyrirtækið ECA Promgram fái starfsleyfi á Keflavíkurflugvelli.
Þetta má lesa á vef Víkurfrétta.
Fram kemur að Björgvin hefur komið talsvert að verkefni E.C.A. Program hér á Íslandi. Hann sagði í samtali við Víkurfréttir binda miklar vonir við þetta risastóra verkefni og að það verði að veruleika.
Í fréttinni segir enfremur:
Fyrirhuguð viðhaldsstöð E.C.A. Program Iceland ehf. á Keflavíkurflugvelli og staðsetning á allt að 20 þotum hér á landi til þjálfunar og kennlsu flugmanna og öll sú atvinna sem fylgir þessu verkefni sé kærkomin fyrir Suðurnes og að sögn Björgvins myndarleg erlend fjárfesting hér á landi. Öll leyfi til flugrekstrar liggi fyrir þó ennþá sé verið að ganga frá lausum endum. Verkefnið sé ekki hernaðarleg starfsemi og segir Björgvin að leiðrétta þurfi þann misskilning sem hafi gætt í fréttum af verkefninu í dag. Málið hafi komið inn á borð núverandi ríkisstjórnar á síðasta ári, þar sem það hafi verið samþykkt. Verkefnið sé mikið og gott atvinnumál fyrir Suðurnes sem Björgvin segist styðja heilshugar.
Eins og fram kom á Eyjunni í gær skilgreinir ECA Program sig sem einkarekið fyrirtækið á sviði hernaðarmála. Samkvæmt Víkurfréttum hefur það stofnað dótturfélag á Íslandi, en upplýsingar um það er þó ekki að finna í fyrirtækjaskrá.
