Samkvæmt drögum að frumvarpi um breytingar á skattlagningu afskrifta, sem fjármálaráðherra sendi ríkisstjórninni sl. þriðjudag, munu einstaklingar greiða tekjuskatt af 50% afskriftar sem er undir 20 milljónum króna. Fyrirtæki þurfa hins vegar samkvæmt drögunum að greiða skatt af 50% afskriftar sem er lægri en 50 milljónir.
Morgunblaðið segir frá þessu.
Skatturinn hækkar svo í 75% af því sem verður afskrifað umfram 20 milljónir hjá einstaklingi og afskrifta umfram 50 milljóna hjá fyrirtæki.
Bæði fyrirtæki og einstaklingar munu skv. drögunum færa til tekna þann hluta niðurfellingar sem greiða þarf skatt af með þremur jafn háum fjárhæðum á þremur árum frá og með því ári þegar skuldin var gefin eftir.
Að sögn fjármálaráðherra munu einstaklingar og fyrirtæki ekki þurfa að greiða neinn skatt af afskrift upp að tiltekinni upphæð, verði þessi leið að veruleika.
