Formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, krefst afsagnar ríkisstjórnarinnar og vill kosningar sem fyrst. Telur hann niðurstöðu nýrrar skoðanakönnunar sem sýnir mikla sókn Sjálfstæðisflokksins á sama tíma og fylgi hrynur af ríkisstjórnarflokkunum segja allt sem segja þurfi í þessu efni.
Mbl.is náði tali af Bjarna í kjölfar umræddrar könnunar sem Fréttablaðið birtir í dag og Eyjan greinir frá hér. Sýnir sú verulegan viðsnúning almennings og yrði gengið til kosninga nú fengi Sjálfstæðisflokkurinn eina 27 þingmenn kjörna á Alþingi. Stuðningur við ríkistjórnina mælist aðeins 39 prósent.
Segir Bjarni ekkert koma sér á óvart. Þetta hafi þingmenn og fulltrúar flokksins fundið undanfarnar vikur og mánuði og brýn þörf sé á að boðað verði til kosninga sem fyrst.
„Ég tel að ríkisstjórn sem er verklaus, ósamstiga og nýtur ekki trausts hafi ekkert erindi lengur. Fólk ætlast til þess að stjórnvöld þvælist ekki fyrir. Fólk vill fá að grípa þau tækifæri sem eru til staðar. Ríkisstjórnin hefur ekki haft burði til þess að greiða götu fólks og fyrirtækja.“
