Föstudagur - 19.3 2010 - 15:27 - Ummæli ()

Björgvin G. Sigurðsson: Málefni ECA Program var reifað á ríkisstjórnarfundi

bjorgvin-sigurdsson.jpg„Þarna er aðeins um misskilning að ræða hjá viðkomandi blaðamanni enda er þetta verkefni ekki þess eðlis að ríkistjórnin þurfi sérstaklega að samþykkja eða ekki samþykkja,“ segir Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður Samfylkingar, við Eyjuna.

Samflokksmaður hans, Kristján Möller, samgönguráðherra, vísaði í hádeginu á bug fullyrðingum Björgvins þess efnis að verkefni ECA Programs hefðu þegar hlotið sérstaka blessun íslenskra stjórnvalda.

Rétt væri hins vegar að málefni tengd fyrirtækinu ECA og áformum þess voru reifuð lítillega á ríkisstjórnarfundi snemma á síðasta ári og það staðfestir aðstoðarmaður Kristjáns. Verkefnið hafi hins vegar ekki fengið neitt sérstakt samþykki né blessun.

Stemmir það við fregnir Eyjunar í gær þess efnis að Flugmálastofnun, sem nú undirbýr jarðveginn fyrir verkefnið með nýju regluverki, hafi ekki fengið neinar upplýsingar um samþykktir stjórnvalda. Þvert á móti hafi ekkert og muni ekkert gerast varðandi áhuga ECA Programs á að setja upp viðhaldsstöð fyrir herþotur og þyrlur á Keflavíkurflugvelli fyrr en undirbúningsvinnu Flugmálastjórnar ljúki. Töluverður tími sé í það enda þurfi að hanna frá grunni allt regluverk enda sér starfsemi sú sem fyrirhuguð er einstök á heimsvísu.

Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra og formaður Vinstri grænna, sagðist eftir ríkisstjórnarfund í dag vera persónulega lítt hrifin af hugmyndum ECA en ennfremur að hann skildi þá sem því væru hlynntir.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar