Sú undarlega staða er komin upp meðal hópa mótmælenda að samtökin Nýtt Ísland sem barist hefur ásamt Hagsmunasamtökum heimilanna fyrir bættum kjörum skuldsettra heimila hefur ákveðið að segja sig úr samstarfi við hóp er kallar sig Alþingi götunnar. Þykir NÍ fullmikil vinstri slagsíða og hentistefnu pólítík einkenna þann hóp.
Óvíst er hvort þetta er einstakt en sérstakt er það og senda samtökin Nýtt Ísland frá sér sérstaka tilkynningu vegna málsins. Er harðlega gagnrýnt að hópur Alþingis götunnar stundi afskipti af skoðunum og stefnu ræðumanna þeirra sem fram hafa komið á Austurvelli í vetur.
Tilkynningin í heild sinni er svohljóðandi:
Samtökin Nýtt Ísland hafa ákveðið að segja sig frá Alþingi götunnar. Í allan vetur hafa NÍ og Hagsmunasamtök heimilanna staðið fyrir kröfufundum á Austurvelli. Með tilkomu Alþingi götunnar 6. febrúar s.l. hafa samtökin ákveðið að draga sig útúr því slysi sem virðist vera að fæðast þar. Í stað málefnalegrar umræðu og að kröfur NÍ og HH um leiðréttingu lána heimilanna og bílalána, er komin all mikil vinstri slagsíða og mikil hentistefnu pólítík á kröfufundum AG.
Alþingi götunnar stundar afskipti af skoðunum og stefnu ræðumanna en ekki frían aðgang að míkrófón Austurvallar eins og NÍ og HH viðhöfðu í allan vetur. Val á ræðumönnum fara eftir pólitískum skoðunum manna og virðist vera ríkjandi vinstri stefna en hægri menn nær óvelkomnir. NÍ taldi hægri menn jafnt sem vinstri menn velkomna á sína kröfufundi og stundaði ekki flokkadrætti. Það sama virðist ekki gilda hjá AG, þar sem menn og málefni eru dregin í dilka.
Því sjáum við okkur ekki fært um annað en að kveðja slíkan félagsskap þar sem samtökin NÍ trúa ekki á frekari afglöp vinstri manna við endurreisn Íslands.
