Föstudagur - 19.3 2010 - 09:19 - Ummæli ()

Enn engir samningafundir um Icesave. Skýrsla rannsóknarnefndar gæti tafið samninga

icesave2.jpgSkýrsla rannsóknarnefndar Alþingis gæti haft áhrif á framvindu samningaviðræðna við Breta og Hollendinga um Icesave. Uppi eru skiptar skoðanir um hvort betra er að ljúka samningum áður eða eftir að skýrslan verður birt, en Fréttablaðið hefur heimildir fyrir því að Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, vilji ekki semja fyrr en skýrslan liggur fyrir. Ýmsir aðrir telja þvert á móti að betra sé að ljúka samningum fyrr, þar sem skýrslan kunni að draga upp dekkri mynd af tilkomu Icesave-reikninganna og ábyrgð stjórnmálamanna.

Ekki hefur enn verið boðaður fundur samninganefnda Íslands, Bretlands og Hollands um Icesave, en nefndirnar hafa ekki hist síðan 5. mars, daginn fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna. Fulltrúar nefndanna hafa þó átt í samskiptum sín á milli.

Samkvæmt heimildum blaðsins er væntanleg skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis ofarlega í huga margra. Telja sumir hagsmunum Íslendinga best borgið með því að samið verði áður en hún kemur, þar sem í skýrslunni geti verið upplýsingar að finna sem dragi upp enn dekkri mynd af tilkomu Icesave-reikninganna og þætti stjórnmálamanna.

Þá hafa heimildarmenn blaðsins nefnt að Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, vilji bíða skýrslunnar áður en hann tekur ákvörðun sem styggt gæti bakland hans.

Strandað hefur á Bretum og Hollendingum að setjast að samningaborðinu á nýjan leik. Telja sumir að þeir telji óþarft að semja áður en skýrslan kemur út, nema tryggt verði að gengið verði endanlega frá samningunum fyrir þann tíma. Skýrslan muni skekja pólitískt bakland hérlendis og gæti því haft áhrif á niðurstöðuna.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar