FL Group bauð Agnesi Bragadóttur til Bandaríkjanna árið 2005. Agnes fór til Minneapolis og leit FL Group svo á að verið væri að styðja blaðakonuna. Rannsóknarnefnd Alþingis skoðar meðal annars tengsl fjölmiðlamanna og stórfyrirtækja.
Þetta kemur fram í DV í dag, en Agnes neitar að tala um ferðina við blaðið.
Samkvæmt fréttinni flaug Agnes til Minneapolis í Bandaríkjunum í boði flug- og fjárfestingafélagsins FL Group í október árið 2005. Blaðakonan dvaldi í Minneapolis í tæpan mánuð.
Þetta kemur fram í tölvupósti frá stjórnanda FL Group til undirmanns síns sem dagsettur er þann 11. október árið 2005. DV hefur tölvupóstinn undir höndum. Í honum biður stjórnandinn undirmann sinn að ganga frá fluginu til Minneapolis fyrir Agnesi.
Ekki er vitað í hvaða erindagjörðum Agnes fór til Minneapolis og hún þvertekur fyrir að ræða tilgang ferðarinnar. Áður hafði hún neitað því í samtali við DV.is að hafa nokkurn tíma þegið slíka ferð. „Ég hef aldrei þegið boðsferð til útlanda,“ sagði Agnes í lok síðasta mánaðar.
