Föstudagur - 19.3 2010 - 13:16 - Ummæli ()

Framkvæmdastjóri Stálskipa: Misskilningur að allir geti veitt fisk. Gætum eins farið aftur í torfkofana

afli.jpg„En það er misskilningur að halda að allir geti veitt fisk og gert það með hagkvæmum hætti. Menn sjá fyrir sér árabát sem kostar ekki neitt og karl með derhúfu og færi. Við viljum ekki fara aftur til þess tíma. Þá ættum við líka að vilja fara aftur í torfkofana,“ segir Guðrún Lárusdóttir, framkvæmdastjóri Stálskipa í viðtali við Viðskiptablaðið.

Þar sendir Guðrún stjórnmálamönnum og öðrum þeim er vilja komast í útgerð tóninn og segir öfund einkenna alla umræðu. Slíkt komi reyndar alltaf upp þegar vel gangi í sjávarútveginum enda vilji þá allir fá bita af kökunni. Bendir Guðrún á að auðlindin sé takmörkuð og því sé eðlilegt að þeir sem þegar hafi aðgang og kunni að fara með afurðina og gera það á hagkvæman hátt hafi áfram sama aðgang og verið hefur.

Þá fullyrðir Guðrún að allt tal um lokað kerfi í sjávarútveginum séu orðin tóm. Allir séu velkomnir þar inn og býðst Guðrún til að selja áhugasömum sem hafi samband.

Fiskur sem skiptimynt

Guðrún segir af og frá að innganga í Evrópusambandið sé töfralausn fyrir land og þjóð.  Það segi sig sjálft að það yrði talsvert auðveldara fyrir þá sem vilja þar inn að hafa fiskstjórnunarkerfið á sinni hendi til nota sem skiptimynt í viðræðum við Brussel. Kvótinn fari þó ekkert meðan íslenskir útgerðarmenn hafi ráðstöfunarrétt á honum.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar