Forsvarsmenn hollensku Planck stofnunarinnar fullyrða að Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, og Ólafur Ragnar Grímsson, forseta Íslands, lítist bærilega á hugmyndir þess efnis að Íslendingar greiði Icesave skuldir sínar með raforku gegnum háspennustreng.
Vísir greinir frá þessu og vitnar í vefsíðu CSRwire Talkback máli sínu til stuðnings.
Er því vissulega haldið fram þar að þessir tveir forsprakkar Íslands hafi átt fundi vegna þessa máls og ekki útilokað neitt í þeim efnum. Ekki kemur reyndar fram í greininni hvað álit Ólafs Ragnars hefur með málið að gera.
Samkvæmt áætlunni greiðir Íslands Icesave skuld sína alfarið með orku sem leidd verður til Bretlands og Hollands gegnum þartilgerða sæstrengi. Slík áætlun hefur stuðning fjölmargra aðila samkvæmt greininni og þar á meðal þingmanna, seðlabankastjóra og fólks hvaðanæva að úr heiminum sem sérstaklega leggur lið sitt við umhverfisvænum verkefnum.
Fullyrðir forsprakki Planck stofnunarinnar að með því að selja orku sína með slíku móti gæti Ísland orðið Sádí-Arabía Vesturlanda enda yfirdrifið næg orka hér í jörð sem ekki er notuð í dag.
