Föstudagur - 19.3 2010 - 11:20 - Ummæli ()

Greiningardeild ríkislögreglustjóra: Hryðjuverkaógn á Íslandi ekki talin ýkja mikil

2005_05-012.jpgGreiningardeild ríkislögreglustjóra metur hættu á hryðjuverkum hér á landi almennt litla en jafnframt þykir ekki ástæða til að hafna slíkri ógn með öllu. Möguleikar íslenskra lögregluyfirvalda til að koma í veg fyrir hryðjuverk af einhverjum toga eru mun minni en lögregluyfirvalda í nágrannalöndunum.

Morgunblaðið skýrir frá þessu og vísar í upplýsingar úr sérstakri matsskýrslu sem embætti ríkislögreglustjóra lét taka saman fyrir árið 2010. Tilefnið er að í vikunni var reynt að eyðileggja fjarskiptamöstur með afar einföldum búnaði en hefði slíkt tekist hefði það lamað mjög fjarskipti bæði almennings, lögreglu og björgunarsveita.

Er niðurstaða hennar að hættustig á Íslandi sé metið til jafns við hættustig á öðrum Norðurlöndum. Hætta á hryðjuverkum sé lítil en þó til staðar. Fram kemur þar að lögregla hér hefur áberandi lakari upplýsingar um mögulegar ógnir eða einstaklinga sem hættulegir gætu talist í þessu tilliti miðað við lögregluyfirvöld í þessum sömu nágrannalöndum og því vonlítið að útiloka að hér fari fram undirbúningur hryðjuverka með einum hætti eða öðrum.

Ekki kemur nákvæmlega fram hvers vegna íslenska lögreglan hefur svona mikið takmarkaðri upplýsingar um hryðjuverkaógn en kollegar á Norðurlöndum í frétt blaðsins.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar