Föstudagur - 19.3 2010 - 14:52 - Ummæli ()

Hjálparstarf kirkjunnar: Sanngjarnt að yfirfara tekjur og útgjöld þeirra sem þangað leita

hjalparstarf-kirkjunnar.jpgAð mati Hjálparstofnunar kirkjunnar er það bæði sanngjarnt og eðlilegt að aflað sé upplýsinga um raunverulega stöðu þeirra sem þangað sækja neyðaraðstoð. Hefur stofnunin síðan í febrúar farið fram á að þeir sem sækja um mataraðstoð framvísi upplýsingum um tekjur og gjöld sín en Persónuvernd hefur til skoðunar lögmæti þessa.

Anna M. Þ. Ólafsdóttir, verkefnisstjóri Hjálparstofnunarinnar, segir við Eyjuna að hún viti ekki betur en leyfi til þessa séu fyrir hendi hjá stofnuninni. Í öllu falli hafi komið í ljós að margir þeirra sem aðstoðar hafi leitað falli ekki undir þau mörk sem stofnunin setur þeim sem þar fá aðstoð. Miðast hún nú við að engir sem eiga meira en 56 þúsund krónur eftir í veskinu eftir öll útgjöld sín geta fengið mataraðstoð gegnum kirkjuna.

Þessi háttur var tekinn upp í kjölfar þess að fjöldi þeirra sem sóttu um aðstoð jókst verulega eftir bankahrunið og jókst jafnt og þétt allt síðasta árið. Virðist komið jafnvægi í aðsóknina eftir síðustu áramót og lítið af nýju fólki leitað sér aðstoðar allra síðasta misserið.

Stofnunin sjálf er ágætlega sett að sögn Önnu. Hún fær reglulega rausnarlega gjafir frá fyrirtækjum og einstaklingum og hefur hingað til getað afgreitt mat reglulega til þeirra sem verst standa.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar