Föstudagur - 19.3 2010 - 12:30 - Ummæli ()

Mikil aukning þjófnaða og innbrota. Pólverjar og Litháar fremstir í flokki

loggubill.jpgAf þeim erlendu hópum sem lögregla hefur mest haft afskipti af vegna þjófnaða og innbrota ber áberandi mest á hópum Pólverja og Litháa í því sambandi. Koma margir þeirra gagngert til landsins til að rupla og ræna. Töluverð aukning þjófnaða og innbrota mælist á síðasta ári samkvæmt bókum lögreglu og virðist í mörgum tilfellum sem um þaulskipulagða starfsemi sé að ræða.

Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sérstakrar greiningardeildar ríkislögreglustjóra en þar er skýrt tekið fram að innlendir hópar afbrotamanna standi ekki síður í þjófnuðum og innbrotum hvers konar eins og þeir erlendu. Segir í skýrslunni að mest láti slíkir afbrotamenn til sín taka á höfuðborgarsvæðinu, Akureyri, Akranesi, Selfossi, Hvolsvelli, Borgarnesi og á Suðurnesjunum.

Segir greiningardeildin næsta víst að innbrot og þjófaðir verði áfram næstu misserin fyrirferðamikil á verkefnalista lögreglu ekki síst með tilliti til versnandi efnahags og færri almennra tækifæra til atvinnu.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar