Föstudagur - 19.3 2010 - 06:59 - Ummæli ()

Ný könnun: Sjálfstæðisflokkur langstærstur. Fylgi stjórnarflokka fellur. Margir óákveðnir

konnunfrbl.jpgSjálfstæðisflokkurinn er á ný langstærsti stjórnmálaflokkur landsins, samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar Fréttablaðsins sem gerð var í gærkvöldi. Flokkurinn fengi yfir 40 prósent atkvæða og 27 þingmenn. Aðeins 39 prósent styðja ríkisstjórnina.

Sjálfstæðisflokkurinn fékk 23,7 prósent atkvæða í þingkosningum 25. apríl í fyrra, og 16 þingmenn kjörna. Flokkurinn hefur ekki mælst með svo mikið fylgi í könnunum Fréttablaðsins frá því 23. febrúar 2008, þegar 40,1 prósent studdi flokkinn.

Stjórnarflokkarnir tapa miklu fylgi frá síðustu könnun Fréttablaðsins. Samfylkingin nýtur stuðnings 23,1 prósents kjósenda, og Vinstri græn 20,6 prósenta. Alls sögðust 43,7 prósent aðspurðra myndu kjósa annan hvorn stjórnarflokkanna, sem fengju samtals 28 þingmenn samkvæmt könnuninni og myndu þar með missa þingmeirihlutann.

Þegar spurt var um stuðning við ríkisstjórnina sögðust 38,9 prósent þeirra sem afstöðu tóku styðja stjórnina, en 61,1 prósent sagðist ekki styðja stjórnina. Konur eru líklegri til að styðja stjórnina en karlar, 40,5 prósent kvenna styðja stjórnina en 37,3 prósent karla.

Framsóknarflokkurinn bætir ekki við sig fylgi þrátt fyrir mikið fylgistap stjórnarinnar. Flokkurinn mælist með stuðning 13,3 prósenta þeirra sem afstöðu tóku í könnuninni. Borgarahreyfingin nýtur stuðnings 2,1 prósents kjósenda, og 0,6 prósent sögðust myndu kjósa Hreyfinguna.

Hringt var í 800 manns sem valdir voru með slembiúrtaki úr þjóðskrá fimmtudaginn 18. mars. Svarendur skiptust jafnt eftir kyni, og hlutfallslega eftir búsetu og aldri.

Spurt var: Hvaða lista myndir þú kjósa ef gengið yrði til kosninga í dag? Ef ekki fékkst svar var spurt: Hvaða flokk er líklegast að þú myndir kjósa? Ef ekki fékkst svar var að lokum spurt: Er líklegra að þú myndir kjósa Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern annan flokk? Þrátt fyrir ítrekaðar spurningar tók aðeins 60,1 prósent afstöðu og því 481 svarandi á bakvið niðurstöðuna.

Einnig var spurt: Styður þú núverandi ríkisstjórn? Alls tóku 88,8 prósent afstöðu til þeirrar spurningar.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar