Þráinn Bertelsson, Alþingismaður, segir hugmyndina um að fá hollenska herþjónustufyrirtækið E.C.A. til Suðurnesja dæmi um málflutning „geggjuðustu kjördæmapotara og frjálshyggjufífl landsins.“ Þá veltir hann því fyrir sér hvort „Al Kaída gæti hugsað sér að reisa hátækniþjálfunarbúðir hérna ef Íslendingar sýna skilning og áhuga á greiða götu þeirra sem ekki eru beinlínis hernaðarfyrirtæki“ og einnig mætti „fá Hells Angels til landsins og leigja þeim flugskýli til að gera við mótorhjól.“
Í pistli sínum á Smugunni í dag hefur hann fylgismenn við hugmyndina að háði og spotti, sérstaklega þarsem þeir hafi sagt að ekki væri um hernaðarfyrirtæki að ræða.
Þá gefur hann lítið fyrir þau rök að um atvinnuuppbyggingu sé að ræða og að þeir skapist fjölmörg störf.
„Jamm. Leiðsögumenn sem sækja ferðamenn til Keflavíkur geta þá bent stoltir á þessa starfsemi sem stórkostlega lyftistöng fyrir ímynd hins friðsama og umhverfisvæna Íslands á alþjóðvettvangi. (…) Þetta hljómar næstum eins vel og DeCode á sínum tíma,“ skrifar Þráinn.
Þá gerir Þráinn gys að þeirri yfirlýsingu í gær, að hollenska fyrirtækið muni fljótlega halda blaðamannafund til að skýra starfsemina betur út.
„Þetta er rosalega opið og gegnsætt og mikill heiður fyrir Íslendinga að svona framfarastofnun skuli vilja endurreisa trú okkar á framtíðina. Kannski Al Kaída gæti hugsað sér að reisa hátækniþjálfunarbúðir hérna ef Íslendingar sýna skilning og áhuga á greiða götu þeirra sem ekki eru beinlínis hernaðarfyrirtæki.
Kannski það sé líka hægt að fá Hells Angels til landsins og leigja þeim flugskýli til að gera við mótorhjól? Þeir segjast vera hjólreiðafélag og varla getur hjólreiðafélag stundað skipulagða glæpastarfsemi?“
