Föstudagur - 19.3 2010 - 15:24 - Ummæli ()

Tiger Woods: Klámstjörnuviðhaldið birtir erótísk sms á heimasíðu sinni

Joslyn James, klámstjarnan sem átti sæti í kvennabúri kylfingsins kynóða Tiger Woods, birtir nú öll sms-in sem fóru á milli þeirra, á heimasíðu sinni.

tigervidhald.jpgFlest skilaboðin innihalda leiðbeiningar fyrir Joslyn um hvernig hún eigi að hegða sér til að komast á stefnumót með Tiger. Hvaða leiðir hún eigi að fara og hvenær sé svo komin tími til að drífa sig heim.

Önnur skilaboð eru af erótískara tagi en þar útskýrir Tiger hvað hann langi til að gera með Joslyn og hvernig. Til dæmis leggur hann til að þau fari í trekant með stelpu sem hún treysti ásamt fleiru. Ennfremur leggur hann til flengingar, hártog og sitthvað fleira.

Til að fræðast meira um samband þeirra Tigers og Joslyn má smella hér á heimasíðu dömunnar og lesa sms-in.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar