Aðstoðarmaður Steingríms sakar andstæðinga Icesave um kvein- stafi, hroka og vesældarþráhyggju
Indriði H. Þorláksson, aðstoðarmaður Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra, sparar ekki stóryrðin í nýjum greinaflokki um Icesave-málið sem birtist í vefritinu Smugunni í dag. Segir hann að málflutningur andstæðinga Icesave-samkomulagsins við Breta og Hollendinga hafi einkennst af þjóðernishroka, heimsfrelsun, minnimáttarkennd, kveinstöfum og vesældarþráhyggju. Hann hafnar því að baráttan gegn Icesave-samkomulaginu hafi verið andóf gegn stórkapítalisma.
Indriði segir í pistlinum á Smugunni að umræðu um Icesave málið á opinberum vettvangi og í fjölmiðum verði líklega helst minnst fyrir það að hún hafi ekki snúist um efnisatriði málsins. „Í umræðunni fundu flestir mola við sitt hæfi sem nýttust þeim til að gera sjálfmynd sína að söluvöru á markaðstorgi lýðskrumsins. Þjóðernishroki, heimsfrelsun, minnimáttarkennd, kveinstafir og vesældarþráhyggja fundu sér samastað í henni. Unnt var að fræðast mikið um þátttakendur en lítið um málið,“ skrifar hann.
Indriði boðar greinaflokk um Icesave-málið á Smugunni. Í fyrstu greininni fjallar hann um það hvort baráttan gegn Icesave-samkomulaginu hafi beinst gegn alþjóðlegum fjármagnseigendum, stórkapítalismanum. Hann hafnar því algjörlega og fullyrðir að þorri þeirra sem átti innistæður á Icesave-reikningunum í Bretlandi og Hollandi hafi verið venjulegt almúgafólk sem fallið hafi fyrir gylliboði um hagstæðan sparnað.
Indriði segir ennfremur að andstæðingar Icesave-samninganna hafi „sett kíkinn fyrir blinda augað og bundið trúss sitt við hugmyndafræðilega leiðtoga útrásarinnar,“ eins og hann kemst að orði.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
