eyjan.is

Mánudagur 22.03.2010 - 12:53 - Ummæli ()

Financial Times: Lyfjafyrirtækið Pfizer áhugasamt um Actavis. Yfirtaka ekki útilokuð

actavis.jpgLyfjafyrirtækið Pfizer, sem er eitt þeirra allra stærstu í heimi, kann að hafa áhuga að yfirtaka Actavis samkvæmt upplýsingum breska blaðsins Financial Times. Greinir blaðið frá því að lyfjarisinn hafi haft áhuga á kaupum þegar reynt var að selja Actavis fyrir ári síðan en nú sé ný staða uppi sökum mikilla skulda Novator, félags Björgólfs Thors Björgólfssonar, gagnvart lánadrottnum.

Áhugi Pfizer stafar ekki eingöngu af því að yfirtaka sé nú vel möguleg heldur ekki síður vegna þess að einkaleyfi Pfizer á mörgum af þekktari lyfjum þess sé að renna út og einfaldasta ráðið við slíku sé að festa kaup á viðurkenndu samheitalyfjafyrirtæki á borð við Actavis.

Segir blaðið frá því að Deutsche Bank sem fjármagnaði yfirtöku Novator á Actavis á sínum tíma vilji ógjarnan afskrifa hluta af fjögurra milljarða króna skuld félagsins eins og líkur eru á. Því sé ekki útilokað að Pfizer yfirtaki þær skuldir alfarið og þar með slái bankinn og lyfjarisinn tvær tvær flugur í einu höggi á kostnað Novator.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is