eyjan.is

Mánudagur 22.03.2010 - 15:45 - Ummæli ()

Ögmundur hafnar málflutningi aðstoðarmanns Steingríms. Segir nálgun Indriða að Icesave ranga

ogmundurjonasson09.jpgÖgmundur Jónasson alþingismaður hafnar málflutningi Indriða H. Þorlákssonar, aðstoðarmanns Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra, um að með því að endurgreiða Icesave-lánið sé verið að borga almúgafólki það sem því ber en ekki berjast við stórkapítalismann. Hann segir í athugasemd á vefritinu Smugunni að þetta sé röng nálgun að Icesave-deilunni.

Eyjan sagði fyrr í dag frá grein Indriða H. Þorlákssonar þar sem harkalega er deilt á andstæðinga Icesave-samkomulagsins og fullyrt að Icesave-málið snúist ekki um baráttu gegn alþjóðlegum fjármagnseigendum, stórkapítalistum, heldur um að borga almúgafólk sparifé sitt til baka.

Miklar umræður hafa spunnist í framhaldi af greininni á Smugunni og á Eyjunni. Meðal þeirra sem leggur orð í belg er Ögmundur Jónasson.  Hann segist ekki vita hverjir það voru  sem settu sparnað sinn í Icesave þótt reyndar vilji svo til að hann þekki til nokkurra slíkra einstaklinga. Þeir hafi fengið sitt borgað en eins og kunnugt sé hafi breska og hollenska ríkið greitt innistæðueigendum og krafið íslenska skattgreiðendur um endurgreiðslu á vöxtum, svo miklum að leiðangurinn hafi átt að skila arði! Um þetta hafi síðan verið togast í samningaviðræðum.

„Eftir því sem liðið hefur á þetta ferli hefur fjölgað í þeim hópi heima og heiman sem telja að skattgreiðendum beri ekki að borga með þessum hætti og að við höfum látið gabba okkur í þessu efni auk þess sem við höfum verið beitt þvingunum,“ skrifar Ögmundur.  Nú síðast hafi framkvæmdastjóri norska innistæðutryggingasjóðsins lýst yfir þessari skoðun. Það breyti því ekki að við eigum við ramman reip að draga því Bretar og Hollendingar hafi sótt liðstyrk víða og óspart beitt ESB og AGS.

„Í ljósi þessa höfum við þurft að meta aðstæður og reyna að komast að málamiðlun sem báðir geti unað við,“ segir Ögmundur. Það sé strax gríðarlegur áfangi að komast niður á „cost of funding“ grundvöll sem þýði, eftir því sem honum skiljist, að ekki eigi beinlínis að hagnast á ógæfu okkar.

„Vonandi tekst að þoka þessum málum áfram í ásættanlegri farveg,“ segir Ögmundur.

Um kenningu Indriða um almúgafólkið og stórkapítalistana segir Ögmundur í athugasemd sinni: „Þetta finnst mér röng nálgun. Í hruninu hafa margir tapað. Sumir eigum sínum, aðrir vinnu sinni og enn aðrir sjá fram á rýrnandi þjónustu í velferðarþjóðfélaginu. Staðreyndin er að sjálfsögðu sú að eigum sínum hefur fólk komið fyrir með mismunandi hætti, mistryggum. Sumir eiga náttúrlega ekki neitt. Öll „eigum“ við hins vegar velferðarsamfélagið.  Þegar við nú stöndum frammi fyrir því hvort eigi að setja í forgang, séreignakerfið eða sameignarkerfið – einkaeignarréttinn eða réttinn til heilbrigðisþjónustu, örorkubóta, skólagöngu og svo framvegis þá forgangsraða ég í þágu hins síðarnefnda. Það breytir því ekki því miður, að við verðum vegna efnahagsþrenginga okkar að ganga á velferðarþjóðfélagið. Um síðustu áramót voru bætur öryrkja skertar. Áður hafði lögvarinn réttur þeirra til bóta verið afnuminn. Ég greiddi atkvæði með skerðingunni. Það var mér þungbært. En ég mun ekki ganga þann planka endalaust og meta mína forgangsröðun í ljósi þeirra stefnumiða sem ég setti fram þegar ég var kosinn á þing. Þá mátti hverjum vera ljóst að ég væri ekki tilbúinn að fórna velferðarsamfélaginu fyrir réttindi fólks í einkavæddu einkaeignarkerfi.“


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is