eyjan.is

Mánudagur 29.03.2010 - 12:26 - Ummæli ()

Bandaríska sendiráðið: Lætur alvarlegum ásökunum um leka leyniskjala ósvarað

embassy.JPGEnginn í bandaríska sendiráðinu hér á landi hyggst svara eða tjá sig um alvarlegar ásakanir er fram koma í skjölum sem lekið hefur verið til vefmiðilsins Wikileaks og innlendir fjölmiðlar hafa greint frá. Er þar um að ræða trúnaðarskjöl um íslenska embættismenn og ráðherra en skjölin verða birt í heild sinni síðar í dag.

Upplýsingafulltrúi sendiráðsins, Kathy Eagen, segir engu svarað að svo stöddu af hálfu Bandaríkjamanna en útilokar ekki að formleg yfirlýsing verði gefin út þegar og ef tilefni þykir til. Sem kunnugt er er enn enginn bandarískur sendiherra starfandi á Íslandi.

Hefur utanríkisráðherra, Össur Skarphéðinsson, lýst yfir mikilli undrun og reiði yfir skjölum sem sýna að bandarískir aðilar hafa tekið saman gögn um ráðherra landsins og minnst einn embættismann eins og greint er frá hér.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is