eyjan.is

Mánudagur 29.03.2010 - 11:58 - Ummæli ()

Stærsti fjárfestirinn í DV: Íhugar að láta meira að sér kveða en aðeins sem fjárfestir

moggablog2.png„Ég útiloka ekkert að ég komi meira að þessu en aðeins sem fjárfestir enda alltaf haft áhuga á blöðum og blaðamennsku,“ segir Lilja Skaftadóttir, sem nú er stærsti fjárfestirinn í DV eftir að Hreinn Loftsson seldi blaðið um helgina. Hún aftekur þó að hún hyggi á frekari landvinninga á fjölmiðlamarkaði en aðalatriðið sé að minnst eitt dagblað sé með öllu hlutlaust og starfi í þágu fólksins í landinu.

Lilja er nú á leið til Íslands og ætlar að heilsa upp á starfsfólk dagblaðsins í kjölfarið en hún er með annan fótinn í Frakklandi þar sem hún bjó lengi vel áður en hún flutti á ný til landsins árið 2006. Hefur hún nokkuð látið að sér kveða að undanförnu og var meðal frambjóðenda fyrir Borgarahreyfinguna við síðustu kosningar. Þá er hún framleiðandi heimilidarmyndarinnar Maybe I should have.

Að sögn Lilju tók hún ákvörðun að vera með eftir að ritstjórinn, Reynir Traustason, hafði samband við hana. Að hennar mati er brýn þörf á dagblaði hérlendis sem ekki er að ganga erindi manna hvers helsta hlutverk það er að kasta ryki í augu fólksins í landinu. „Eftir að ég heyrði af áhuga af hálfu Jóns Ásgeirs og Bakkavararbræðra tók ég ákvörðun að vera með og koma þannig í veg fyrir að DV félli í skaut slíkra manna.“

Lilja er þó ekki að þessu peninganna vegna enda gerir hún sér grein fyrir að dagblaðarekstur á Íslandi sé ekki vænlegur gróðarekstur. „Mín skoðun er sú að náist að halda jafnvægi í rekstrinum og blaðið haldi sér fyrir ofan núllið en ekki neðan þá er mikill sigur unninn.“


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is