eyjan.is

Miðvikudagur 07.04.2010 - 11:13 - Ummæli ()

Skýrslan um bankahrunið lesin upp í heild í Borgarleikhúsinu. Tekur 45 leikara 3-5 sólarhringa

borgarleikhusid.jpgLeikarar Borgarleikhússins hyggjast lesa skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis um bankahrunið upp í heild sinni þegar hún kemur út á mánudaginn, 12. apríl. Borgarleikhúsið býður landsmönnum að hlýða á upplesturinn, en skýrslan telur um 2.000 blaðsíður.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá leikhúsinu.

Í tilkynningunni segir að listamenn muni ekki leggja mat á innihaldið né gera tilraun til að túlka skýrsluna með neinum hætti. Þá segir að lesturinn hefjist um leið og skýrslan hafi verið gefin út og muni standa dag og nótt þar til skýrslan hafi öll verið lesin.

Um 45 leikarar taka þátt í upplestrinum sem áætlað er að taki 3-5 sólarhringa.

Landsmönnum býðst að koma í Borgarleikhúsið og hlýða á skýrsluna að hluta eða í heild. Verður leikhúsið opið allan sólarhringinn meðan á lestrinum stendur en flutningnum verður einnig sjónvarpað á vef leikhússins


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is