eyjan.is

Miðvikudagur 14.04.2010 - 15:57 - Ummæli ()

Sveinn Andri vill að Bjarni Ben stígi til hliðar og Þorsteinn Pálsson verði aftur formaður

screen-shot-2010-04-14-at-33918-pm.png

Sveinn Andri Sveinsson, hæstaréttarlögmaður, telur að Bjarni Benediktsson skaði Sjálfstæðisflokkinn með áframhaldandi setu á formannsstóli og vill að Þorsteinn Pálsson verði aftur formaður. Þá telur hann að með skýrslu rannsóknarnefndarinnar hafi Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður flokksins, og Illugi Gunnarsson, þingflokksformaður veikst verulega.

Sveinn Andri er rótgróinn sjálfstæðismaður, var mjög liðtækur í ungliðastarfi flokksins á sínum yngri árum og varð ungur borgarfulltrúi. Enda þótt hann hafi sinnt lögmennsku af krafti um árabil hefur hann haldið samböndum innan Sjálfstæðisflokksins og er vel tengdur. Að hans mati er hinn almenni sjálfstæðismaður ósáttur við gang mála.

Að hans mati eiga allir stjórnmálamenn sem áður höfðu bein tengsl við hina svokölluðu útrásarvíkinga að endurmeta stöðu sína. Í samtali við Eyjuna segir Sveinn Andri að ýmsar upplýsingar í skýrslu rannsóknarnefndarinnar veiki Bjarna Benediktsson í formannsstóli og að flokkurinn hafi einfaldlega ekki efni á því. Nefnir hann sérstaklega Vafningsmálið og að Bjarni hafi farið í golfferð með Glitni í einkaþotu.

„Jafn mætur maður og Bjarni er, sem ég þekki ágætlega og bara af góðu, þá eru þessi mál að grafa það mikið undan honum sem formanni að flokkurinn má ekki við því. Nóg var nú samt,“ segir Sveinn Andri við Eyjuna.

Sveinn Andri telur ekki heppilegt að bíða með formannsskipti fram að landsfundi á næsta ári. En hver á að taka við flokknum?

„Að mínu mati á Þorsteinn Pálsson að taka aftur við sem formaður. Það er enginn annar sem leitt getur flokkinn í gegnum þessar erfiðu þrengingar. Hann er auk þess algerlega ósnortinn af hremmingum síðustu ára og ekki í neinum tengslum við svokallaða útrásarvíkinga. Þá er hann í góðum tengslum við aðila vinnumarkaðarins og hefur skýra framtíðarsýn í efnahags- og gjaldmiðlamálum þjóðarinnar,“ segir hann.

Og Sveinn Andri  vill að fleiri sjálfstæðismenn hafi veikst verulega með útskomu skýrslunnar.

„Staða Illuga Gunnarssonar er enn verri. Hann er stjórnarmaður í Sjóði 9, höfundar skýrslunnar komast að þeirri niðurstöðu ekki hafi verið farið eftir settum reglum í fjárfestingum sjóðsins og þar voru lagðir 11 milljarðar af skattfé til að rétta sjóðinn af. Í ljósi þess að málefni sjóðsins eru á borði sérstaks saksóknara verður Illugi að víkja af þingi, a.m.k. tímabundið. Svipaða sögu er að segja um Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, sem er minn uppáhaldsstjórnmálamaður, miklar lántökur eiginmanns hennar eru að veikja hana stórkostlega,“ segir Sveinn Andri og bætir því við að með þessu sé hann einfaldlega að segja það sem ýmsir sjálfstæðismenn hugsa og ræða sín á milli.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is