„Varðandi varaformanninn þá verð ég að segja að þau lán sem þar er um að ræða eru fullkomlega óeðlileg,“ sagði Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, aðspurður um stöðu Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, varaformanns flokksins.
Hún var að hluta til skráð fyrir lánum þeim er eiginmaður hennar, Kristján Arason, fékk hjá Kaupþingi til hlutabréfakaupa en upphæðirnar í heildina hlaupa á tæpum tveimur milljörðum króna.
Þessi orð lét formaðurinn falla í Kastljósi RÚV þar sem hann sagði ennfremur að hann ætlaði sér að gefa Þorgerði betra tækifæri til að skýra út hvað þarna væri á ferðinni eins og Bjarni komst að orði. Ítrekaði hann þó að lánin væru ekki hennar eigin heldur eiginmanns hennar. „Ég veit hún vill gera það. Ég veit hún ætlar að gera það frammi fyrir trúnaðarmönnum flokksins núna strax um helgina.“
Ekki kom fram í máli Bjarna hvort skýringar Þorgerðar yrði gerðar opinberar í kjölfar fundar með trúnaðarmönnum flokksins. Eyjan hefur árangurslaust reynt að ná í Þorgerði frá því skýrslan kom út en staða hennar innan flokksins er talin afar veik. Var hún erlendis þegar skýrslan kom út.
215
97