Fimmtudagur - 15.4 2010 - 17:28 - Ummæli ()

Össur: ESB-aðild engin töfralausn en umsóknarferlið lykill að endurreisn Íslands

ossur-esb.jpgÖssur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, hvetur til þess að umsóknarferlið um aðild að Evrópusambandinu verði sem faglegast, hvort sem mönnum kann að þykja kostur eða galli við að ganga í sambandið. Hann telur umsókn um aðild að ESB grundvallarþátt í endurreisn Ísland, en segir jafnframt að ESB sé engin töfralausn.

Þetta kom fram í ræðu Össurar nú síðdegis á ráðstefnu um málefni Evrópusambandsins. 

„Umsókn um aðild er þannig grundvallarþáttur í endurreisn Íslands. Við þurfum traustari umgjörð utan um okkar atvinnu- og efnahagslíf. Við þurfum langtímastöðugleika fyrir fjölskyldur og fyrirtæki og við þurfum að rjúfa vítahring verðbólgu, vaxta og verðtryggingar sem allt sligar. Við þurfum að losa okkur við kollsteypuhagkerfið,“ sagði Össur í ræðu sinni.

Þá hvatti hann til samstöðu um aðildarferlið og að virðing yrði borin fyrir ólíkum sjónarmiðum um Evrópumál.

„Við skulum því standa saman um að aðildarferlið verði okkur öllum til sóma, að hér fari fram opin og lýðræðisleg umræða um kosti og galla aðildar. Við skulum bera virðingu fyrir skoðunum hvers annars og ræða málin út frá því hvað best er fyrir Ísland í bráð og lengd. ESB er ekki töfralausn en aðild getur orðið okkur að verulegu liði til að byggja hér nýtt Ísland, nýja framtíð,“ sagði Össur.

Ræðu Össurar má lesa hér og sjá myndband af henni hér.

 


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar