Fimmtudagur - 15.4 2010 - 19:04 - Ummæli ()

Stórflóð hafið í Markarfljóti. Íbúar í Fljótshlíð beðnir að rýma hús og leita skjóls

eyjafjallajokull2.jpgStórflóð er hafið í Markarfljóti og eru íbúar beðnir að hafa hraðar hendur, rýma hús sín og koma sér í gott skjól. Búist er við að flóðið skella á með fullum þunga á næstu klukkustundum.

Klukkan 18:30 tóku íbúar í Fljótshlíð eftir því að mikið hlaup var hafið og fór það með mikið meiri hraða en fyrri hlaup sem þó hafa ekki verið lítil. Að auki eru nú stórir jakar að fljóta niður með hlaupinu en það hefur ekki gerst áður.

Allsherjar rýming yfirvalda nær til Fljótshlíðar og í Landeyjum. Rýming gengur mjög vel að sögn yfirvalda á staðnum.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar