eyjan.is

Sunnudagur 18.04.2010 - 20:09 - Ummæli ()

Viðskiptasiðfræðingur: Þeir sem stóðu vaktina í hruninu eiga að víkja

rikisstjorn-geirs-haarde.jpgStefán Einar Stefánsson, viðskiptasiðfræðingur í Háskólanum í Reykjavík, segir að allir þeir sem sátu í ríkisstjórn í aðdraganda hrunsins og sitja ýmist sem ráðherrar eða þingmenn í dag ættu að axla ábyrgð. Til að vinna traust almennings að nýju væri eðlilegast fyrir þá að stíga til hliðar.

„Mér finnst þetta vera skref í rétta átt. Sumir vilja meina að ekki sé gengið nógu langt en þetta eru þó einhver viðbrögð og menn virðast vera með því móti að gangast við ábyrgð sinni. Menn hafa velt því fyrir sér hvort þeir ráðherrar sem sátu í ríkisstjórn á þeim tíma sem hrunið átti sér stað og sitja enn í ráðherraembættum hvort þeir þurfi ekki að gera hreint fyrir sínum dyrum,“ sagði Stefán Einar í fréttum Stöðvar 2 í kvöld.

Hann segir eðlilegast fyrir þá að víkja til hliðar til að vinna traust almennings að nýju. Það sama gildi um þingmenn Sjálfstæðisflokksins sem sátu í ríkisstjórn þegar hrunið varð.

Jón Baldvin: Davíð og Halldór bera ríka ábyrgð

Í fréttinni var einnig rætt við Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra. Hann sagði formenn stjórnarflokka bera mesta ábyrgð, formenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks og síðar Samfylkingar.

„Formenn flokkanna á því tímabili sem bankakerfið hrundi voru náttúrulega Geir Haarde og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. Mér finnst Ingibjörg hafa stigið fyrsta skrefið í axla ábyrgð í gær en Geir hefur ekki gert það,“ bætir hann við.

Hann segir hins vegar Davíð Oddson og Halldór Ásgrímsson fyrrverandi formenn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins einnig bera ríka ábyrgð.

„Stjórnmálaflokkarnir sem báru ábyrgð á þeirri óstjórn á Íslandi sem leitt hefur þessar þungu búsifjar yfir þjóðina og almenning. Það eru þeirra flokkar sem eiga að gera upp við þessa menn,“ segir hann að lokum.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is