Viðskiptasiðfræðingur var arkitekt að hallarbyltingu innan SUS í fyrra
Stefán Einar Stefánsson, sem hefur verið titlaður viðskiptasiðfræðingur í fréttum undanfarna daga, tók þátt í að smala fimmtíu manns í Fokker flugvél fyrir landsfund Sambands ungra sjálfstæðismanna í fyrra og tryggja þannig formannskjör Ólafs Arnar Nielsen. Hópferðin olli miklum titringi innan flokksins og voru Stefán Einar og Ólafur Örn sakaðir um óheiðarleg vinnubrögð og hallarbyltingu í SUS.
Í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöld var viðtal við Stefán Einar, sem taldi að fleiri ættu að segja af sér í kjölfar skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis um bankahrunið. Eyjan sagði frá frétt Stöðvar 2.
„Hann er blóðugur upp að öxlum í innanflokksátökum og skýtur nokkuð skökku við að hann ætli sér að vera siðferðisvörður annarra,“ sagði einn sjálfstæðismaður við Eyjuna.
Stefán Einar er sagður tilheyra þeim armi innan Sjálfstæðisflokksins, sem handgenginn er Davíð Oddssyni og Birni Bjarnasyni, en andsnúinn Geir H. Haarde og Deigluhópnum.
Stefán Einar komst í fréttir í september síðastliðnum þegar hann var sagður hafa skipulagt hópflug nýrra liðsmanna í Sjálfstæðisflokknum til að tryggja formannskjör Ólafs Arnar Nielsen, líkt og Eyjan sagði frá á sínum tíma. Stefán Einar var auk þess sjálfur kosinn í stjórn SUS, en hann hafði í apríl í fyrra sagt sig úr stjórninni eftir að upp komst um 30 milljóna styrk til Sjálfstæðisflokksins frá FL Group.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
