Þriðjudagur - 20.4 2010 - 15:54 - Ummæli ()

Ráðherrar gagnrýna forsetann fyrir óvarleg ummæli og að tefla hagsmunum í tvísýnu

steingrimurjalthingi.jpgRáðherrar hafa í dag gagnrýnt forseta Íslands fyrir óvarleg ummæli um eldgosið í Eyjafjallajökli. Þeir lýsa eftir hófstilltri umræðu um eldgosið og að vísindamenn verði látnir um að spá fyrir um Kötlugos.

Steingrímur J. Sigfússon var málshefjandi við sérstaka umræðu um eldgosið á Alþingi og gagnrýndi hann Ólaf Ragnar Grímsson harðlega fyrir ummæli hans á BBC í gærkvöld. Eyjan greindi frá viðtalinu fyrr í dag, en þar sagði forsetinn m.a. að eldgosið í Eyjafjallajökli væri aðeins létt æfing fyrir komandi Kötlugos, sem væri örugglega í vændum. Ekki væri spurning hvort heldur hvenær Katla myndi gjósa og að ríki heimsins ættu að búa sig undir það. Steingrímur telur Ólaf Ragnar stuðla að hræðsluáróðri í viðtalinu.

„Það er með öllu óþarft og mjög óheppilegt, að skapaður sé viðbótarórói og hræðsla með til dæmis vangaveltum um mögulegt Kötlugos þannig að yfirveguð umfjöllun og æðruleysi eru mjög mikilvægt við þessar aðstæður. Skilaboðin til umheimsins eiga að vera þau, að hér sé full stjórn á öllu, sem mannlegur máttur fær við ráðið. Við megum ekki draga upp þá mynd af landinu út á við að Ísland sé hættulegt land að heimsækja. Það er óþarfi að fjölyrða um hve neikvæð og alvarleg áhrif það getur haft, t.d. á okkar ferðaþjónustu og fleiri atvinnugreinar og hagsmuni landsins alls,“ sagði Steingrímur.

Undir þetta tekur Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra, en ferðamálin heyra undir hana.

„Mín skoðun er sú að það eigi að láta almannavarnir og vísindamenn um það að meta hvort eldgos í Kötlu sé á næsta leiti,“ segir Katrín við Vísi. Hún telur mikilvægt að gefa réttar upplýsingar til fjölmiðla erlendis og segir að sú vinna sé þegar hafin.

„Það má ekki gerast að menn tali með þeim hætti að allt landið sé undir.“

Í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar í morgun kemur fram að átta ráðuneyti taka nú þátt í umfangsmikilli viðbragðsáætlun stjórnvalda og að viðbúnaður hafi almennt gengið vel.

Samtök ferðaþjónustunnar gagnrýndu forsetann harðlega í dag og sögðu hann tefla ferðaþjónustu í tvísýnu. Þá sagði Friðrik Pálsson, eigandi Hótel Rangár í samtali við Eyjuna: “Þessi ummæli forsetans eru bæði óskiljanleg og afar skaðleg og þetta á eftir að hafa áhrif á ferðaþjónustuaðila á landsvísu um langan tíma,”

 

 


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar