Njörður: Þurfum nýtt lýðveldi. Þjóðin treystir ekki Alþingi, ekki ríkisstjórn, ekki forseta Íslands
Þjóðin treystir hvorki stjórnvöldum né eftirlitsstofnunum: ekki Alþingi, ekki ríkisstjórn, ekki forseta Íslands. Þar með er stjórnkerfið, sjálft lýðveldið í raun hrunið. Því þarf að ganga nú hreint til verks, hreinsa rækilega til í rústum þess lýðveldis sem hrundi og stofna nýtt lýðveldi með nýrri stjórnarskrá.
Þetta segir Njörður P. Njarðvík í grein í Fréttablaðinu i dag.
Njörður vakti fyrst athygli á þessum hugmyndum sínum í Silfri Egils í janúar í fyrra og benti þá á fordæmi Frakka. Hann telur að skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis sýni að hér á landi hafi ekki aðeins skollið á fjármálakreppa, heldur sýni skýrslan og sanni að allt íslenska stjórnkerfið hafi brugðist.
„Skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis staðfestir nú hversu hörmulega er komið fyrir okkur sem þjóð. Í raun og veru má segja, að bankahrunið (fjármálakreppan) sé ekki alvarlegast, heldur hrun traustsins. Allt brást. Spillingin hefur verið svo yfirgengileg, að okkur datt ekki í hug að svo gæti verið. Og nú þegar þetta hefur verið birt okkur áþreifanlega og opinberlega á ábyrgan hátt, treystir þjóðin hvorki stjórnvöldum né eftirlitsstofnunum: ekki Alþingi, ekki ríkisstjórn, ekki forseta Íslands. Þar með er stjórnkerfið, sjálft lýðveldið í raun hrunið. Nú ætti að blasa við öllum hugsandi mönnum, að við getum ekki haldið áfram á sömu braut. Við verðum blátt áfram að hugsa grundvöll tilveru þjóðarinnar upp á nýtt. Það verður ekki gert með neinni sýndarmennsku, smáskammtalækningum eða pólitískum heftiplástri. Þegar stjórnmálamenn bregðast, verður þjóðin sjálf að taka í taumana,“ skrifar Njörður.
Njörður telur brýnt að kjósa stjórnlagaþing sem allra fyrst. Ekki sé nóg að lappa upp á gallaða stjórnarskrá, heldur verði að semja nýja, alveg frá byrjun.
„Það eru einu skynsamlegu viðbrögðin. Það var gert í Þýskalandi eftir hrun nasismans, það var gert í Suður-Afríku þegar mannfjandsamleg kynþáttastefna beið loks ósigur. Og það þurfum við að gera í okkar ósigri eftir hrun hinnar ómanneskjulegu frjálshyggju. Það er eina leið okkar til að endurheimta reisn okkar sem þjóð og orðstír okkar meðal annarra þjóða. Til þessa stjórnlagaþings verður að vanda sérstaklega. Þar má enginn þingmaður sitja, enda má segja að þeir beri ansi margir mikla ábyrgð á því hvernig komið er og séu því hluti af vandanum,“ skrifar Njörður og lýkur grein sinni þannig:
„Göngum nú einu sinni hreint til verks. Hreinsum rækilega til í rústum þess lýðveldis sem hrundi – og stofnum svo nýtt lýðveldi með nýrri stjórnarskrá.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
