Prófessor: Skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis lýsir umfangsmikilli refsiverðri háttsemi
Í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis má finna mikilvægar vísbendingar um umfangsmikla refsiverða háttsemi í rekstri fjármálastofnana og tengdra aðila. Þetta kom meðal annars fram í erindi Sigurðar Tómasar Magnússonar, prófessors við Háskólann í Reykjavík, á ráðstefnu um rannsóknarskýrsluna sem fram fór í HR í dag.
Ráðstefnan tók á fjölbreyttan hátt á ástandinu á Íslandi fyrir hrun og voru ályktanir skýrslunnar greindar, einsog sjá má á erindum ráðstefnunnar.
Erindi Sigurðar Tómasar var undir liðnum „Uppgjör: Hvernig á að gera upp fortíðina? Getur réttlætið náð fram að ganga? Hvernig á að meðhöndla þá sem ábyrgðina bera, pólitíska, siðferðislega og lagalega? Hverjum þarf að bæta tjón? Hver situr á endanum uppi með tjónið?“ og hafði Sigurður Tómas til hliðsjónar spurninguna „Hvað þarf að gera til að setja punkt? Refsiábyrgð.“
Sigurður Tómas sagði augljósar vísbendingar í skýrslu rannsóknarnefndarinnar um refsiverða háttsemi, en tók fram að skýrslan hefði þó ekki að geyma sönnunargögn sem myndu duga til sakfellingar fyrir dómi. Skýrslan gæti á hinn bóginn hjálpað til við öflun sönnunargagna.
Ráðstefnan var haldin í samstarfi Háskólans í Reykjavík, Háskólans á Akureyri og Háskólans á Bifröst. Hún hófst klukkan tíu í morgun og hefur staðið yfir í allan dag.
Átján fræðimenn hafa á henni flutt erindi á sex málstofum en í hverri þeirra var fjallað um afmarkaðan þátt efnahagshrunsins.
Sömu erindi verða svo flutt í Háskólanum á Akureyri á morgun.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
