eyjan.is

Miðvikudagur 28.04.2010 - 12:52 - Ummæli ()

Makar og fyrrum makar ganga harðast fram í ofbeldi gagnvart konum

Merki kvennaathvarfsins. Þangað sækja sífellt fleiri konur árlega vegna ofbeldis

Mörgum konum dugar ekki að skilja við maka sína eða eiginmenn til að losna við ofbeldi af þeirra hálfu samkvæmt viðamikilli úttekt. Telja fyrrum makar heilan þriðjung allra þeirra sem fremja ofbeldi á konum sem leita þurfa til Kvennaathvarfsins.

Þetta er meðal merkilegra upplýsinga sem fram koma í rannsókn sem Elva Dögg Kristinsdóttir gerði sem hluta af meistaranámi sínu við Háskólann í Reykjavík en Elva fékk fordæmislausan aðgang að gögnum Kvennaathvarfsins vegna rannsóknar sinnar. Fór hún grannt yfir 1740 skýrslur athvarfsins sem náðu yfir sjö ára tímabil.

Í ljós kemur að makar og fyrrum makar eru yfirgnæfandi meirihluti þeirra sem beita konur ofbeldi. Makar telja 56 prósent gerenda en fyrrum makar mælast 33 prósent. Sýnir það vel þá sorglegu staðreynd að oft nægir það ekki konum að skilja við maka sína til að losna úr klóm ofbeldis.

Engum þarf að koma á óvart að karlmenn eru 99 prósent þeirra sem ofbeldi beita og öllu merkilegra er að yngsti ofbeldismaðurinn á þessu tímabili var 14 ára gamall. Ekki er síður athyglisvert að nokkur fjöldi karlmanna sem komnir voru yfir 70 ára aldur beittu konur ofbeldi á þessum tíma.

Karlmenn a miðjum aldri eru þó helstu gerendur og reyndist fjölmennasti hópur ofbeldisfullra karlmanna vera um 42 ára aldur.

Þá er líka fróðlegt að íslenskir karlmenn eru 84 prósent þeirra sem ofbeldi beittu en aðeins 16 prósent af erlendu bergi brotnir. Þá virðist menntun ekki endilega skipta máli. 40 prósent gerenda höfðu aðeins lágmarksmenntun, 40 prósent einhverja framhaldsskólamenntun og 20 prósent reyndust háskólamenntaðir.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is