Reykjavíkurborg líka í naflaskoðun. Kanna skal aðdraganda og orsakir hrunsins á borgina
Tillögu Vinstri grænna í borgarráði þess efnis að farið verði gaumgæfilega í saumana á aðdraganda, orsakir og afleiðingar efnahagshrunsins á borgina og fjárhag hennar var vísað til sérstaks aðgerðarhóps borgarráðs sem taka mun ákvörðun á mánudaginn kemur.
Verði tillagan samþykkt verður skipuð sérstök nefnd sérfræðinga sem fara munu í kjölinn á öllu er viðgekkst í borginni fyrir hrun og eftir með tilvísun í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis.
Skal þess gætt að fullt samkomulag allra flokka í borgarstjórn verði um skipan allra sérfræðinga í þá rannsóknarnefnd. Skal hún sérstaklega ganga í:
- Að kanna stjórnsýslu borgarinnar og aðkomu stjórnmálamanna að fjárhagslegum ákvörðunum á undanförnum árum.
- Að kanna hvort einstakir aðilar eins og verktakar, bankar og fyrirtækjasamsteypur hafi nokkurn tímann fengið óeðlilega fyrirgreiðslu.
- Að kanna hvort fjársterkir aðilar hafa beint eða óbeint haft áhrif á pólitískar og stjórnsýslulegar ákvarðanir.
- Að kanna hvort fjársterkir aðilar hafi hagnast á tengslum við borgina og einstaka embættismenn eða borgarfulltrúa.
- Að kanna hvort einstakir embættismenn, borgarfulltrúar eða frambjóðendur til borgarstjórnar hafi hagnýtt sér persónulega eða í þágu síns flokks tengsl við fjársterka aðila sem hafa átt í viðskiptum við borgina.
- Að koma með ábendingar og tillögur að breytingum á lögum, reglum, vinnubrögðum og skipulagi stjórnsýslu borgarinnar.
Gert er ráð fyrir að tillagan verði afgreidd af borgarráði eftir viku en skilað verði tillögum um hvernig verkið skal unnið fyrir 15. maí. Niðurstaða skal liggja fyrir 31. ágúst.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

