Jón Gnarr dregur framboð Besta flokksins til baka…
Svona var stemningin á framboðsfundi í Háskólanum í Reykjavík í dag, en þar áttust við oddvitar framboðanna fyrir borgarstjórnarkosningarnar.
Jón Gnarr, oddviti Besta flokksins, hélt tilfinningaþrungna ræðu og boðaði endalok Besta flokkins.
„Ég sagði það strax í upphafi að ef þetta yrði leiðinlegt þá myndi ég bakka út úr þessu. Það fóru að renna á mig tvær grímur, meiri alvara að færast í þetta og leiðindi, síðustu dagar verið mjög erfiðir. Og eftir vandlega umhugsun hef ég ákveðið að draga framboð Besta flokksins til baka í sveitarstjórnarkosningunum.“
Þarna gerði Jón hlé á máli sínu á meðan gestir og aðrir frambjóðendur stóðu á öndinni. Þá sagði hann einfaldlega: „Djók!“ og uppskar mikinn hlátur. Svo lauk hann máli sínu þannig:
„Það er fyrst að verða gaman núna og ég er risinn úr öskunni einsog fuglinn Felix!“
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

