Yfir 80% nota farsíma undir stýri. Helmingur undir þrítugu skrifar SMS keyrandi
Yfir 83 prósent svarenda í könnun MMR hafa notað farsíma undir stýri undanfarna 12 mánuði. Lang flestir, eða 71,0%, sögðust hafa notað farsíma eitthvað fyrir símtöl án handfrjáls búnaðar og 24,0% sögðust hafa notað farsíma eitthvað fyrir símtöl með handfrjálsum búnaði.
Ríflegur meirihluti, eða 58,4%, sögðust hafa notað farsíma undir stýri eingöngu án handfrjáls búnaðar og 11,4% sögðust hafa notað farsíma undir stýri en eingöngu með handfrjálsum búnaði1.
Þá kemur fram í könnuninni að um helmingur fólks undir þrítugu, eða 47,2%, skrifar eða les SMS skilaboð við akstur. Samanlagt í öllum aldurshópum sögðust 26,4% hafa notað farsíma við akstur til að skrifa/lesa SMS skilaboð og 3,5% sögðust hafa notað farsíma við akstur til að fara á internetið.
16,9% svarenda sögðust aldrei hafa notað farsíma við akstur á síðastliðnum 12 mánuðum.
Spurt var: „Hefur þú notað farsíma undir stýri síðastliðna 12 mánuði?“ Svarmöguleikar voru: „Já, fyrir símtöl án handfrjáls búnaðar“, „Já, fyrir símtöl með handfrjálsum búnaði“, „Já, til að skrifa/lesa sms“, „Já, til að fara á internetið“, „Nei, hef ekki notað farsíma undir stýri“, „Nei, á ekki farsíma“ og „veit ekki/vil ekki svara“. Samtala niðurstaðna er hærri en 100% þar sem hver svarandi gat merkt við fleiri en eitt atriði. Samtals tóku 97,4% afstöðu til spurningarinnar.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
