eyjan.is

Miðvikudagur 12.05.2010 - 12:27 - Ummæli ()

Búist við látum við héraðsdóm. Fjöldi vill fylgjast með réttarhaldi en aðein 21 sæti laust

Héraðsdómur Reykjavíkur

Samkvæmt heimildum Eyjunnar innan úr lögreglunni gera menn þar ráð fyrir látum á eftir þegar mál níumenninganna svokölluðu verður fyrir tekið í héraðsdómi Reykjavíkur.

Hafnaði dómstjóri því alfarið að færa réttarhaldið þótt átök hefðu blossað upp við upphaf réttarhaldanna fyrir skömmu. Hlaut lögregla mikla gagnrýni fyrir að færa með valdi áhorfendur úr réttarsal en engin lög heimila slíkt.

Segir Ragnar Aðalsteinsson við RÚV að enginn vafi sé á að farið sé á svig við stjórnarskrá með því að vísa fólki frá opnu þinghaldi eins og gert hafi verið en níumenningarnir eru ákærðir fyrir brot gegn valdstjórninni þegar þeir réðust inn í Alþingi í Búsáhaldabyltingunni fyrir rúmu ári.

Aðeins 21 áhorfandi getur sest niður í þeim sal sem málið er tekið fyrir í í dag en allnokkrir hópar fólks hyggjast mæta á staðinn og fylgjast með hvað sem tautar og raular. Sá réttur er ótvíræður að opið réttarhald sé opið öllum sem því vilja fylgjast með og engin lög sem hefta það.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is