Traust á stjórnmálaleiðtogum: Fæstir treysta Bjarna Ben, mest traust á Steingrími
Fæstir treysta Bjarna Benediktssyni, formanni Sjálfstæðisflokksins, þegar spurt er um traust á stjórnmálaleiðtogum, samkvæmt reglubundinni könnun MMR. Nú segjast 67 prósent bera lítið traust til Bjarna, en í næstu könnun á undan, í september 2009, svörðu 54,4 prósent í þá veru.
Aðeins var spurt um sex stjórnmálaleiðtoga, þ.e. forystumenn flokkanna fimm auk forseta Íslands. Má segja að þeir fái falleinkunn hjá þjóðinni, þar sem allir þeirra fá fleiri neikvæð svör en jákvæð.
Hjá Steingrími J. Sigfússyni, fjármálaráðherra, er þetta þó í mestu jafnvægi. 37,6 prósent segjast treysta Steingrími, en 40,6 prósent bera lítið traust til hans.
Næst flestir eða 26,7% sögðust bera mikið traust til Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, en 46,9 prósent sögðust bera lítið traust til hans.
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, er svo í þriðja sæti. 23,9 prósent segjast treysta henni, en 52,9 prósent ekki. Traust á henni hefur þó minnkað frá síðustu könnun, eða úr 36 prósentum.
Nú segist 16,1 prósent bera mikið traust til Birgittu Jónsdóttur, formanns þingflokks Borgarahreyfingarinnar en 7,4 prósent báru mikið traust til hennar samkvæmt könnuninni í september 2009. Þeim sem segjast bera lítið traust til Birgittu fækkar nokkuð milli kannanna, nú segjast 55,4 prósent bera lítið traust til hennar borið saman við 63 prósent í síðustu könnun.
Flestir stjórnmálaforingjarnir njóta mikils traust sinna kjósenda. Bjarni Benediktsson sker sig þó nokkuð úr, því aðeins hann nýtur aðeins trausts 55,6 prósenta Sjálfstæðismanna, en aðrir njóta mun meiri hylli sinna kjósenda.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

