Fráfarandi rektor vill nýtt lýðveldi og beina kosningu framkvæmdavalds
Ágúst Einarsson, fráfarandi rektor Háskólans á Bifröst, gagnrýndi stjórnvöld harðlega við útskrift á Bifröst í dag og vill nýtt lýðveldi og beina kosningu framkvæmdavaldsins. Ágúst lætur nú af störfum sem rektor Háskólans á Bifröst en við starfi hans tekur Magnús Árni Magnússon.
Í ræðu sinni sagði Ágúst bestu leið Íslendinga út úr kreppunni vera að efla háskóla og gagnrýndi hann stjórnvöld fyrir að rífa niður háskólakerfið. Hann sagði helsta vanda Íslendinga vera fámennið og þegar við hafi bæst siðleysi, græðgi og glæpamennska nokkurra tuga manna í lykilstöðum í fjármálageiranum hafi hið fámenna samfélag okkar hrunið eins og spilaborg.
Ágúst tók undir hugmynd Njarðar P. Njarðvík um að stofna ætti nýtt lýðveldi enda væri flokkakerfi 20. aldarinnar gjaldþrota. Ágúst kvaðst vilja að framkvæmdavaldið væri kosið beint eins og gert er í Bandaríkjunum og í Frakklandi að hluta og rifjaði upp hugmyndir Bandalags jafnaðarmanna og Vilmundar Gylfasonar.
„Ég tel að við eigum að kjósa framkvæmdavaldið í beinni kosningu. Alþingi verður kosið eftir sem áður en verður með þessu alvöru löggjafarþing og virkur eftirlitsaðili með framkvæmdavaldi sem sækir umboð sitt til þjóðarinnar. Með því fengist betra jafnvægi milli þessara grundvallarstoða samfélagsins,“ sagði Ágúst.
Ágúst sagði að skólastarfið hefði gengið vel á Bifröst og gæði námsins aukist eins og komið hefði fram í erlendri úttekt á þessu ári. Skólinn var rekinn með hagnaði á síðasta ári og það sem af er þessu ári. Umsóknir hafa aldrei verið fleiri en í fyrra og nemendur aldrei fleiri, segir í tilkynningu frá Bifröst.
Magnús Árni Magnússon tók við rektorsstarfinu í dag.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
