Evran er í dauðateygjunum og gæti draumurinn um sameiginlega mynt liðið undir lok innan fimm ára. Þetta er niðurstaða könnunar sem breska blaðið Sunday Telegraph stóð fyrir hjá 25 hagfræðingum í Lundúnum og bitir í dag. Einn þeirra var raunar svo svartsýnn að telja evruna dauða innan viku.
Í frétt blaðsins segir að vandasamt verkefni bíði nýrrar ríkisstjórnar í Bretlandi, sérstaklega fjármálaráðherrans George Osborne, í samskiptum við evruríkin.
Af hagfræðingunum 25 töldu tólf þeirra að evran myndi ekki lifa yfirstandandi kjörtímabil af, þ.e. næstu fimm ár, en átta fræðimenn spáðu evrunni lengra lífi. Fimm voru óákveðnir.
Tveir af þeim átta, sem spáðu evrunni lengra lífi, töldu hana aðeins eiga von ef ákveðin ríki á borð við Grikkland yrðu fyrir greiðslufalli. Evran myndi einfaldlega sökkva með Grikklandi, ef reynt yrði að koma í veg fyrir þjóðargjaldþrot landsins.
Fjórir hagfræðingar töldu ekki endilega líklegast að Grikkland og önnur veikari ríki yrðu látin yfirgefa evruna, meiri líkur væru á því að sterk ríki á borð við Þýskaland myndu gera það til að bjarga eigin efnahag.
