Már sendi forsætisráðherra bréf í fyrra með hugmyndum sínum um launakjör
Már Guðmundsson, seðlabankastjóri, átti í beinum tölvupóstsamskiptum við Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, í júní í fyrra, um væntanleg launakjör sín, áður en hann var skipaður seðlabankastjóri. Þetta kemur fram í tölvupóstsamskiptum Más við forsætisráðuneytið, sem Morgunblaðið hefur fengið aðgang að, að hluta.
Í bréfunum koma þó hvergi fram hugsanleg svör Jóhönnu og því er enn óljóst hvort eða með hvaða hætti hún ræddi launamálin við Má. Jóhanna hefur margsinnis sagt að hún hafi ekki gefið Má fyrirheit um að halda óbreyttum launum, en af þessum tölvubréfum má þó sjá að Már virðist hafa sent Jóhönnu beint sínar hugmyndir um launakjör.
Fram kemur á mbl.is að stuttu áður en Már var skipaður í embættið sagði hann í tölvupósti til Jóhönnu að 37% launalækkun væri líkleg til að valda því að hann hætti við umsókn sína, en að hann bindi vonir við að hún fyndi lausn á því máli. Í tölvubréfi til Jóhönnu, dagsettu 21. júní 2009 segir Már. „Opinber kjör fela auðvitað í sér mjög mikla tekjulækkun frá því sem ég bý við í núverandi starfi. Mér er einnig ljóst að til viðbótar gæti komið lækkun ráðstöfunartekna vegna almennra aðgerða stjórnvalda í skattamálum og því um líku. Ég er hins vegar tilbúinn til að sætta mig við það.“
Afrit af bréfinu var einnig sent á Láru V. Júlíusdóttur, formann bankaráðs Seðlabankans og Ragnhildi Arnljótsdóttur, ráðuneytisstjóra í forsætisráðuneytinu.
Í bréfinu segir Már að komi til þess að laun seðlabankastjóra verði lækkuð um allt að 37% muni hann þurfa að fara yfir ákvörðun sína og miklar líkur séu á því að hún breytist. Í bréfinu virðist hann vísa í eitthvert fyrra samtal sitt við Jóhönnu.
„Þá vil ég nefna það sem mér láðist að geta í samtalinu. Ráðningarferli seðlabankastjóra hefur sem betur fer farið fram fyrir opnum tjöldum. Það hefur hins vegar þær afleiðingar að hinn alþjóðlegi seðlabankaheimur er vel upplýstur um það. Í aðdraganda umsóknar minnar komu ýmsir þeirra að máli við mig og sumir lögðu beinlínis hart að mér að sækja um,“ segir Már.
Eftir að listi umsækjenda hafi verið kynntur hafi mun fleiri talað við hann og lýst yfir ánægju með að hann væri þeirra á meðal. „Það verður að sumu leyti erfitt fyrir mig að útskýra það ef til þess kemur að ég dreg mig til baka. Það yrði hins vegar óhjákvæmilegt vegna orðspors míns í seðlabankaheiminum að gera það,“ segir Már enn fremur í bréfinu.
„Ég vona að til þess komi ekki, enda ekki víst að þeir eigi auðvelt með að skilja hvernig hægt er að breyta kjörum seðlabankastjóra stórlega í miðju umsóknarferli. Ég býst við að heyra frá þér á morgun eða þriðjudag og bind vonir við að þú finnir einhverja viðunandi lausn á þessu erfiða máli,“ segir hann.
Þremur dögum síðar, 24. júní 2009, sendi Lára V. Júlíusdóttir, formaður bankaráðs Seðlabankans, tölvubréf til Ragnhildar Arnljótsdóttur ráðuneytisstjóra, en bréfinu fylgdu drög að tillögu um starfskjör bankastjóra. Í bréfinu segir Lára:
„Sæl Ragnhildur.
Eftir að hafa ráðfært mig við starfsmannastjóra bankans [...] sendi ég ykkur hjálagða tillögu. Hér er allt tekið til og reynt að hafa hlutina einfalda.
Auðvelt er að rökstyðja að formaður peningastefnunefndar skuli fá greitt sérstaklega fyrir þá vinnu alla, þannig að svona er þetta mun heppilegra heldur en að fara að greiða aftur fyrir setu í bankaráðinu.“
26. júní var Má svo send tilkynning frá forsætisráðuneytinu þar sem honum var tilkynnt með vísan til laga að hann hefði verið skipaður seðlabankastjóri til fimm ára frá 25. ágúst.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
