Minnisblað fyrir þingnefnd: Jóhanna kom ekki að launa- málum seðlabankastjóra
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, gaf hvorki fyrirheit né tók ákvarðanir tengdar launamálum Más Guðmundssonar, seðlabankastjóra. Þetta kemur fram í minnisblaði sem lagt var fyrir efnahags- og skattanefnd Alþingis í fyrradag og Eyjan hefur undir höndum.
Eftir að Lára V. Júlíusdóttir, formaður bankaráðs Seðlabankans, lagði fram tillögu um að laun seðlabankastjóra yrðu ekki lækkuð, líkt og laun flestra ríkisforstjóra, var því haldið fram að Jóhanna hefði hlutast til um launamálin og jafnvel lofað Má Guðmundssyni tilteknum launakjörum áður en hann var ráðinn. Jóhanna neitaði margsinnis þessum sögusögnum, en efnahags- og skattanefnd óskaði eftir frekari gögnum í málinu sem lögð voru fram á fundi nefndarinnar á föstudag.
Á fundinum voru m.a. birt öll tölvupóstasamskipti sem vörðuðu málið, auk þess sem Ragnhildur Arnljótsdóttir, ráðuneytisstjóri í forsætisráðuneytinu, og Már Guðmundsson gáfu nefndinni skýrslu um málið. Kom fram hjá þeim báðum að Jóhanna kom hvergi að launamálum seðlabankastjóra, en áður hafði Lára V. Júlíusdóttir sagt það sama. Þá kom fram að viðtal sem Már vísar til í tölvupósti sínum, sem Eyjan birti í morgun, hafi verið staðlað viðtal sem forsætisráðherra átti við alla umsækjendur sem komu til greina í starfið. Einsog sjá má í tölvupóstum Más, þá tjáir hann sig um launamál seðlabankastjóra áður en hann var ráðinn, en af þeim póstum sem lagðir voru fyrir þingnefndina er ekki að sjá að honum hafi verið lofað tilteknum launakjörum.
Í minnisblaði Ragnhildar segir m.a. að forsætisráðherra hafi ekki gefið fyrirheit eða tekið ákvarðanir tengdar launamálum Más Guðmundssonar, „enda um að ræða mál sem var að öllu leyti á forræði bankaráðs Seðlabanka Íslands og síðar kjararáðs. Þá er það alveg skýrt að hvorki ég né forsætisráðherra eða aðrir í forsætisráðuneytinu gáfu loforð eða fyrirheit um að seðlabankastjóri héldi óbreyttum kjörum eftir að þær breytingar sem fyrirhugaðar voru væru komnar til framkvæmda, enda mátti öllum vera ljóst að það væri ekki á valdi forsætisráðuneytisins að gefa slík fyrirheit, vilyrði eða loforð. Samtöl mín síðar við Má og Láru hafa ekki breytt þessum skilningi mínum.“
Minnisblað Ragnhildar er svohljóðandi í heild:
„Vegna umfjöllunar undanfarið og fyrirhugaðs fundar í efnahags- og skattanefnd í dag, föstudaginn 3. júní, hef ég nú farið yfir öll samskipti sem ég kom að í aðdraganda skipunar Más Guðmundssonar, seðlabankastjóra. Samskiptin voru sem hér segir:
Ég átti samskipti við Láru V. Júlíusdóttur, formann bankaráðs Seðlabanka Íslands, og Má Guðmundsson, seðlabankastjóra, undir lok ráðningarferils við skipun í embætti seðlabankastjóra og aðstoðarseðlabankastjóra sumarið 2009. Í þeim samskiptum voru margvísleg atriði rædd eftir að matsnefnd hafði skilað niðurstöðu sinni, sem tengdust starfi seðlabankastjóra, og þ. á m. launamál. Kom þar m.a. til umræðu hvaða áhrif boðaðar breytingar á lögum um kjararáð og lögum um Seðlabanka Íslands gætu haft á launakjör seðlabankastjóra. Í framangreindum samtölum var meðal annars rætt um það hver heildarlaun seðlabankastjóra gætu orðið með hliðsjón af fyrirhuguðum breytingum. Ég óskaði eftir því við formann bankaráðs Seðlabanka Íslands að hún sendi mér upplýsingar um hugsanleg launakjör seðlabankastjóra og greindi Má Guðmundssyni, sem umsækjanda, frá þeim hugsanlegu launakjörum á grundvelli þeirra upplýsinga sem mér voru sendar. Ég lagði ekki sjálfstætt mat á þessar tölur eða útreikninga, hvorki hvort þeir væru réttir né hvort þeir væru raunhæfir eða kynnu að breytast. Ég var ekki í stöðu til að fullyrða að þarna væri um að ræða tölu sem ekki kynni að taka breytingum, enda var það ekki á neinu stigi hlutverk forsætisráðuneytisins að ákvarða launakjör seðlabankastjóra, það var á þessum tíma alfarið hlutverk bankaráðs og síðar kjararáðs og bankaráðs seðlabankans. Forsætisráðherra gaf engin fyrirheit eða tók ákvarðanir tengdar launamálum Más Guðmundssonar, enda um að ræða mál sem var að öllu leyti á forræði bankaráðs Seðlabanka Íslands og síðar kjararáðs. Þá er það alveg skýrt að hvorki ég né forsætisráðherra eða aðrir í forsætisráðuneytinu gáfu loforð eða fyrirheit um að seðlabankastjóri héldi óbreyttum kjörum eftir að þær breytingar sem fyrirhugaðar voru væru komnar til framkvæmda, enda mátti öllum vera ljóst að það væri ekki á valdi forsætisráðuneytisins að gefa slík fyrirheit, vilyrði eða loforð. Samtöl mín síðar við Má og Láru hafa ekki breytt þessum skilningi mínum. Hafi viðmælendur mínir túlkað orð mín svo að ég hafi gefið fyrirheit eða vilyrði um að laun seðlabankastjóra yrðu að öllu leyti óbreytt, þrátt fyrir umræddar lagabreytingar og/eða síðari ákvarðanir kjararáðs eða bankaráðs Seðlabankans, get ég ekki skýrt það á annan hátt en svo að um misskilning okkar á milli hafi verið að ræða.
Ég vill jafnframt upplýsa að formaður bankaráðs Seðlabanka Ísland, Lára V. Júlíusdóttir, kom til fundar við mig í forsætisráðuneytinu í lok mars sl. og kynnti mér að hún hyggðist leggja fram tiltekna tillögu um laun seðlabankastjóra í bankaráði Seðlabankans að gengnum úrskurði kjararáðs. Við ræddum á þeim fundi um mikilvægi þess að fylgja þeim viðmiðum sem fram kæmu í úrskurði kjararáðs og jafnframt að málefni Seðlabanka Íslands heyrðu nú undir efnahags- og viðskiptaráðuneytið og því bæri að bera málefni er varði bankann undir efnahags- og viðskiptaráðuneytið. Á þessum fundi ítrekaði ég líka aðspurð að ég teldi mig ekki hafa gefið loforð við skipun í embætti seðlabankastjóra sumarið 2009 um að laun seðlabankastjóra héldust óbreytt, þrátt fyrir hugsanlegar lagabreytingar eða úrskurði kjararáðs í framtíðinni. Ég tek það fram að ég upplýsti forsætisráðherra ekki um umfjöllunarefni á þessum fundi mínum með formanni bankaráðs Seðlabanka Íslands m.a. þar sem málefni Seðlabankans heyra ekki lengur undir forsætisráðuneytið. Ég greindi jafnframt ráðuneytisstjóra efnahags- og viðskiptaráðuneytisins á þessum tíma frá því að ég hefði ekki gefið loforð eða fyrirheit um að kjör seðlabankastjóra myndu ekki taka breytingum eftir að hann hefði verið skipaður í embætti.“
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
