eyjan.is

Föstudagur 11.06.2010 - 15:32 - Ummæli ()

Síðasta vígið fallið í baráttu samkynhneigðra. Alþingi samþykkti ný hjúskaparlög

Þingmenn samþykktu einróma og ánægðir ný hjúskaparlög.

Alþingi samþykkti nú eftir hádegi frumvarp dóms- og mannréttindaráðherra um ein hjúskaparlög. Með nýju lögunum munu sömu lög gilda fyrir gagnkynhneigða jafnt sem samkynhneigða, sem geta látið gefa sig saman í hjónaband hjá söfnuðum og sýslumönnum. Nú er talað um hjónaband tveggja einstaklinga en ekki hjónaband karls og konu. 49 þingmenn samþykktu frumvarpið, enginn var á móti.

Margir þingmenn fögnuðu samþykkt frumvarpsins og sögðu að um stórt framfaraskref væri að ræða. Sérstök gleðitíðindi væru það fyrir allt baráttufólk fyrir mannréttindum og réttindum samkynhneigðra.

Lögin taka gildi 27. júní og verður þá boðað til svokallaðrar regnbogamessu í Fríkirkjunni, en sá dagur er opinber baráttudagur samkynheigðra.

Einar Sigurbjörnsson, guðfræðiprófessor sem situr í kenninganefnd þjóðkirkjunnar, segir að hún muni einnig samþykkja ein hjúskaparlög. Nefndin hefur ekki formlega skilað niðurstöðu en Einar segir að Þjóðkirkjan muni ekki standa í vegi fyrir slíkum breytingum. Þeir prestar sem séu andvígir lögunum munu þó eiga kost á að neita að gifta samkynhneigða, ef trúarsannfæring þeirra segi svo. Þannig verði farinn millivegur milli þeirra andstæðu sjónarhorna sem ríki innan kirkjunnar.

Svanfríður Lárusdóttir, formaður Samtakanna 78, segir samtökin afar þakklát og alsæl með nýju lögin. Hún segir samkynhneigða loksins jafn réttháa og aðrir í samfélaginu. Síðasta vígið hafi verið þjóðkirkjan, en nú sé það fallið.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is